Prófķll

  • Nafn: Gušmundur Heišar Helgason
  • Stašur: Kópavogur
  • Um mig: 21 įrs strįkur/mašur śr Kópavoginum. Hef gaman af fótbolta, kvikmyndum, vinum, djammi og aš eyša peningum. Myndi segja aš ég vęri hress og skemmtilegur (veršiš bara aš dęma) en mér finnst alltaf gaman aš kynnast nżju fólki. Er į žrišja įri ķ stjórnmįlafręši viš Hįskóla Ķslands.

Auglżsing

Klukkan

Leikur dagsins

Langt sķšan sķšast

14. október 2009 klukkan 17:26
Ég veit ekki hvort einhver saknaði bloggsins hjá mér, en ég slysaðist inn á það þar sem ég hef hangið heima síðustu daga, gríðarlega einmanna að jafna mig á leiðindapest sem hefur verið að ganga.  Síðasta færsla sem ég kom með var í 12. febrúar og það má nú segja að það hafi margt gerst síðan þá.  Margt gott og líka eitthvað slæmt, en ég mun nú frekar fara yfir þetta góða.



27.febrúar fæddist hann nágranni minn í næsta herbergi Marínó Helgi Unnarsson.  Hann er alveg yndislegur, byrjaður að skríða út um allt og heldur reglulega fyrir mér vöku :).  En við erum miklir félagar bröllum ýmislegt saman!
Hann Marínó er þó ekki eina barnið sem hefur komið við sögu í fjölskyldunni, ónei.   Það var einn skemmtilegan sunnudag, þegar öll fjölskyldan var komin saman í mat þá biðu 2 sónarmyndir á matarborðinu, ein frá Jóhönnu og Jóhanni Inga og ein frá Árnýju systur og Bjarna!  Þessi börn eru sett nánast á sama tíma, 1.nóvember minnir mig, með eins dags millibili.  Þetta kom svolítið á óvart þrátt fyrir að manni ætti nú gruna eitthvað, t.d. þegar ég sá Árný og Bjarna labba saman til læknis og þegar Ásta fann óléttupróf heima á Álftanesinu þegar við fengum að vera þar, en hún pældi samt ekkert í því ekki fyrr en hún sá sónarmyndirnar hehe :) mögnuð athyglisgáfan hjá okkur :P
En já ég verð þá bráðum sá eini barnslausi í fjöldkyldunni! Ekki nógu gott hjá þeim, lætur mig líta illa út ;)

Skólinn er byrjaður aftur og maður er kominn á 3ja ár! Styttist í að maður verði kominn með háskólapróf....finnst eins og ég sé bara nýkominn úr MK, alveg fáránlegt.  Veit ekki alveg hvað maður á að gera eftir BA-prófið, en það er líklegast bara sniðugt að halda áfram í námi. 
Annars er smá tilbreyting núna þar sem ég er í 2 áföngum sem eru kenndir á ensku.  Svolítið sérstakt að heyra prófessor sem maður veit alveg að er íslenskur tala bara við nemendurna á ensku. Hinn enska áfangann kennir svo eldri bresk kona, sem er rosalega krúttleg en það var svolítið ruglandi þegar hún eyddi heilum tíma í að tala um gereyðingarvopn.  Kjarnorku- og efnavopn og hvernig þau drepa þá sem verða fyrir þeim....passaði ekki alveg við þessa gömlu góðu konu. 

Það má segja að það hafi mikið breyst í mínum vinahóp.  Næstum helmingur Sperm-aranna eru bara komnir í lögguna og voru út á landi að vinna í sumar.  Olli býr núna á Akureyri (þarf að kíkja á strákinn bráðum og fara í Sjallann), Heiðar var í Vestmannaeyjum og Flosi á Selfoss minnir mig. Annars hef ég verið að hanga rosa mikið með líffræðingum, þar sem margir góðir vinir mínir eru í líffræði.  Pínu fyndið þar sem ég var nú einn af stofnendum á félagi sem var á móti líffræðingum!  Merki félagsins er hér fyrir neðan.



Fólk þarf samt að fara að passa sig á því að vinir mínir Bjarki og Pétur og fleiri eru farnir að taka grínin sín frekar alvarlega.  Því þegar þeir segjast ætla að gera eitthvað, sem margir myndu túlka sem grín, þá gera þeir það!  Dæmi þegar við ákváðum að halda partý sem við kölluðum "TURKEY", þá sögðumst við ætla að hafa kalkún.  Enginn bjóst hins vegar við því.. en það var keyptur kalkúnn og við eyddum heilum degi í að búa hann til.  Það kom síðan flestum partýgestum á óvart þegar það kom í partýið að það var kalkúnn með fyllingu á boðsstólnum. 
Síðan stakk einhver upp á því að búa til bar í íbúðinni sem Fannsi, Magga og Helga eru að leigja (við strákarnir eigum nú þessa íbúð líka).  Flestir myndu halda að þetta væri grín...een Bjarki og Pétur fóru og keyptu dýra birkiplötu sem við létum leigubílstjóravinkonu okkar grafa ljóð og nöfnin okkar í.  Þeir keyptu líka einhverjar aðrar plötur sem málverk mun príða til að gera barinn fullkominn.  Þannig já, passið ykkur að gefa þessum drengjum brjálaðar hugmyndir...þeir munu framkvæma þær. 

(Passa sig á þessum mönnum)

En já þetta er orðið frekar langt hjá mér.  Sjáum síð til hvort ég nenni eitthvað að halda þessu bloggi við.  ;)

-Gummi


Gušmundur Heišar Helgason
4 athugasemdir

Ķsland ķ dag

12. febrśar 2009 klukkan 15:26
Það er langt síðan maður hefur nennt að blogga, en ég nenni því núna því ég nenni ekki að læra fyrir próf í aðferðarfræðinni :P

Það er sko margt búið að gerast í stjórnmálum á Íslandi og mig langar soldið að tjá mig um það núna..
mér lýst ekkert á þessa nýju ríkisstjórn.  Ætla að koma með nokkra punkta hérna..


  • Stjórnarslitin voru ekki á málefnalegum grundvelli.  Ég held persónulega að Samfylkingin hafi slitið samstarfinu því þeir voru byrjaðir að lækka svo mikið í skoðanakönnunum.  Hún er rosalega góð í því að móta stefnu flokksins eftir að hafa séð skoðanakannanir fyrst.  Fyrir áramót var mikill stuðningur við ESB og þá byrjað samfylkingin að þrýsta á sjálfstæðismenn.  Sjálfstæðismenn ætluðu að fara með þá umræðu á landsfund í febrúar.  En síðan þegar stuðningur þjóðarinnar við ESB lækkar og fylgi XS líka þá verða þeir alveg vitlausir og koma með óraunhæfar kröfur til að geta slitið samstarfinu.   
  • Samfylkingin og Vinstri grænir eru alltaf svo rosalega lýðræðislegir flokkar, eða allavega líta þeir svoleiðis á sjálfa sig.  Hins vegar hefur þessi stjórn aðeins 41,1% fylgi á bakvið sig. 
  • Þeir eru búnir að skipa 2 nýja ráðherra sem eru í hvorugum flokknum og enginn nokkurn tíma kaus þá árið 2007.  Þeir segja að þessir ráðherrar séu skipaðir á faglegum forsendum, en með einmitt svona aðgerðum er verið að taka alla lýðræðislegra ábyrgð frá flokkunum.  Það er ekki lýðræðislegt. 
  • Einnig hafa margir gagnrýnt Árna Matt fyrrv. fjármálaráðherra fyrir að vera dýralæknir en núna hins vegar erum við komin með Steingrím J. Sigfússon menntaðan jarðfræðing í embætti fjármálaráðherra.. ætli þessi gagnrýni gildi þá ekki lengur?
  • Eina málið sem þeir virðast leggja áherslu á er að koma Davíð úr seðlabankanum.  Lögin sem voru gerð um seðlabankann eru líka mjög ófagmannlega unnin og þau vilja ekki svara hverjir unnu þau og hvað sé á bakvið þau.  Mjög léleg stjórnsýsla ef þú spyrð mig.
  • Einnig er verið að hugsa um að hætta við að leyfa hvalveiðar.  Það er fín byrjun í að bjarga þjóðinni með því að slá u.þ.b. 300 möguleg störf af borðinu..

Ég veit ekki alveg hvað blessaði Framsóknarflokkurinn er að þykjast vera stikkfrí.  Fínt hjá þeim að skipta um formann og forystu og allt það en þeir bera samt mikla ábyrgð. 
  • Þeir t.d. eru búnir að vera í ríkisstjórn í 32 ár af síðustu 36 árum. 
  • Þeir voru með sjálfstæðismönnum í stjórn þegar bankarnir voru seldir.
  • Þeir voru með viðskiptaráðuneytið í 12 ár af síðustu 14 árum. Hin 2 árin var ráðuneytið hjá Samfylkingunni


Ég veit ekki alveg hvað Frjálslyndi Flokkurinn er búinn að vera að gera síðustu daga.  Það hefur ekkert heyrst í honum og flokkurinn er með mjög lítið fylgi miðað við að hann sé búinn að vera í stjórnarandstöðu.  Álit mitt á flokknum hefur verið fínt þar sem að þeir eru á móti kvótakerfinu, studdu álversframkvæmdir á sínum tíma og þeir eru með hvalveiðunum.  En hins vegar eru þeir með "vitleysinga" í flokknum og þeir bætast bara við því að nú er Sturla vörubílstjóri víst genginn í flokkinn...já ég segi bara gangi þeim vel.

Annars er ég nokkuð bjartsýnn með Sjálfstæðisflokkinn.  Þeir bera gríðarlega ábyrgð á ástandinu hér á Íslandi.  Hins vegar er verið að skipta út forystunni og ég vona að Bjarni Benediktsson verði kosinn formaður.  Einnig vona ég að það verði tekin afstaða á landsfundi gegn Evrópusambandinu og þeir munu áfram halda sínu striki sem hægri flokkur og gera jafnvel betur en þeir gerðu áður.  Vona sem flestir muni kjósa Sjálfstæðisflokkin í apríl.  

-Gummi

Gušmundur Heišar Helgason
Engin athugasemd

Margt bśiš aš ske

19. janśar 2009 klukkan 13:32
Já það er sko kominn tími á blogg, og þetta er fyrsta bloggið á árinu! ;)
Áramótin voru mjög fín.  Ekki mikið sprengt en ég og Rafn keyptum okkur eina flösku af Moët & Chandon kampavíni saman, sem bragðaðist bara helvíti vel.  Við fórum síðan í partý hjá honum Kristjáni sem var bara mjög fínt og mér tókst að sóða út íbúðina hans á mettíma með innisprengjum sem fygldu mikið drasl.  sorry Kristján. 

Á nýársdag keyrði ég síðan á Blönduós til þess að hitta hana Ástu Berglindi :) því ég hafði ekki séð hana næstum allan desember.  Við vorum í nokkra daga þar og gerðum ekkert nema slaka á..mjög kósý dagar og gott að vera á Blönduósi :D


17. janúar áttum ég og Ásta svo 10 mánaða afmæli. Mjög góður dagur og ég við vorum rosalega rómó ;* En þetta eru búnir að vera 10 frábærir mánuðir :D

Ég og Rafn héldum síðan afmælisteiti þann 10 janúar í tilefni þess að við áttum afmæli í desember. :P  Það var mjög gaman eins og sést á þessari mynda af mér og Ástu þar sem hún Ásta er að drekka rauðvín úr ísskál.  Við máttum nefnilega ekki nota önnur glös vegna þess að þau voru of fín fyrir okkur :P eitthvað svona hönnunardót..



Eins og hefðin er í afmælin hjá mér og Rafni þá eru þau mjög sexý og afmælisgjafirnar í klúrari kantinum.  Ég fékk fullorðinsmyndina "Pirates" sem bætist í safnið við "In my face" og sænsku myndina þar sem að ákveðnir aðilar spottuðu flugu í nokkrum atriðum.  Nefni Nóa ekki á nafn. 







Rafn fékk þessi gervibrjóst í gjöf frá strákunum og vöktu þau mikla lukku.  Einnig það sem einkenndi partýið mikið var hvað fólk virtist ekki ná að halda augunum opnum þegar voru teknar myndir ;D

Ætla að enda þetta á frábærri Durex auglýsingu sem var víst bannað að sína í Bandaríkjunum. 

Gušmundur Heišar Helgason
1 athugasemd

2008-2009

29. desember 2008 klukkan 19:36


Þá styttist óðfluga í það að árið 2008 klárist og 2009 kíkir í heimsókn.  Ég myndi segja að 2008 hafi bara verið mjög gott ár og margt hefur gerst á þessu ári sem er að líða og ég ætla að taka saman svona smá annál sem bar hæst á árinu hjá mér.

-Árið byrjaði á snilldar afmæli hjá Flosa, Andra og Dabba sem var haldið á Gauknum (sem heitir nú Tunglið). Það toppaði þó ekki afmæli mitt, Rafns og Steinars í desember árið á undan!

-1.febrúar var svo skemmtilegt djamm þar sem ég hitti skemmtilega á stelpu á Glaumbar sem ég átti eftir að hitta mörg skipti í viðbót. ;)

-29.febrúar - tvíburar Jóhanns Inga og Jóhönnu skýrðir. Fá nöfnin Védís og Arney.



- 1.mars - SUS-dagur á Blönduósi

-17.mars - Ég og Ásta byrjum saman :*



-Apríl - Ég fer í heimsókn á heimavist MA yfir helgi.
Góð ferð með fjölskyldunni í sumarbústað hjá Apavatni.

-Maí - Flestir að mygla í prófatíð.  Náði öllu, en einkunnir mættu vera hærri :P

-Júní - Fer norður á Akureyri þar sem Ásta er búin í prófum.  Smá djamm tekið svo hjálpa ég henni að flytja dótið af vistinni og á Blönduós.  Tók reyndar dótið hennar Margrétar líka og bíllinn var mjööög troðinn. 

-Júlí - Húnavaka á Blönduósi.  Skemmtileg helgi þar sem ég var fenginn í smá vinnu og svo var farið á ball og skemmt sér eitthvað. 
Brúðkaup Hjalta og Láru á Húsavík, mjög skemmtilegt brúðkaup og góð helgi :)

4.ágúst - Ásta Berglind orðin 18.ára og ég gaf henni kjól ;) Fórum á Akureyri á sunnudeginum um versló þar sem afmælinu var sko fagnað!
Ásta flytur svo suður í lok mánaðarins.  Býr fyrst hjá mér en flytur svo til Einars og byrjar í Borgó þar sem einkunnirnar hjá henni fara ekki undir 7 !

-September - skólinn byrjaði hjá mér, kominn á annað ár í stjórnmálafræði.
Ég týndi mannorðinu mínu. Ég klemmdi mig á bíl fyrir utan Quiznos og það var mjög vont og leið næstum yfir mig.  Nöglin losnaði en hún fór  ekki af fyrr en á aðfangadag. 

-Október - Ég fann mannorðið mitt aftur
Ég fór í lýtaaðgerð...það eru fjarlægðir stíflaðir fitukyrtlar úr eyrnasneplunum mínum. 
Ég og Ásta fórum á sjávarútvegssýninguna...frítt!
Íslenska bankakerfið hrynur
Kattavinafélagið - gegn líffræðingum er stofnað á Facebook við mikla reiði líffæðinga.


-Nóvember - Sperm bústaðarferð! Mikið gaman og mikið af skemmtilegum leikjum eins og froskaleikur og leikur sem maður lemur í borð og gerir merki.
-Forsetakosningar í Bandaríkjunum.  Ég og Ásta kíkjum á kosningavöku hjá Bandaríska sendiráðinu og fáum að kjósa! Við kusum Obama og hann vann. Great success!

-Desember - Prófin byrja - Gengu vel!
Ásta fer norður á Akureyri og svo Blönduós
Ég á afmæli! 21 árs.. hundgamall
Jólin.  Nöglin mín datt af.

Ef það er eitthvað sem ég gleymdi endilega commentið á það!
Já ég vona að 2009 verði jafngott, að allt gangi jafnvel og að maður nái að bæta sig og læra af öllum sínum mistökum :)

-Gummi




Gušmundur Heišar Helgason
3 athugasemdir

Aš verša tuttugu-og

15. desember 2008 klukkan 21:51


Í dag er 15.desember og á morgun þann 16.desember verð ég og hún Árný systir mín 21 árs stutt síðan maður varð 20 ára, en ég, Rafn og Steinar héldum afmælið á Gauknum, með 2 kúta og bolla, algjör snilld þó að ekki allir komust út af því þeir voru í prófi á laugardegi.  En það verður ekkert þannig núna þar sem að 21 árs afmæli er eiginlega ekkert merkilegt og já það er dýrt.   En ég sit hérna heima að gera ekki neitt nema bíða til klukkan 00:00 því þá má ég opna pakkann minn frá Ástu! Laughing

Það styttist svo í jólin, bara 9 dagar.  Það styttist einnig í áramótin og ég held bara að fólk sé byrjað að hamstra áfengi fyrir hátíðarnar.  Mikið að gera í vinnunni á föstudaginn og meira en venjulega á laugardaginn.  Einnig fólk byrjað að versla meira af kampavíni en vanalega, en það er jú svona áramótadrykkur.

Mig langar rosalega að smakka þessa kampavínstegund hérna en hún heitir Dom Pérignon og flaskan kostar heilar 19.990-kr hjá ÁTVR.  Mig langar örugglega bara að smakka það vegna þess að það er dýrt og í flottri flösku...maður er svo einfaldur.  Maður fer nú ekki að kaupa sér svona flösku nema að það sé eitthvað mjög sérstakt, en ég er búinn að ákveða það að það verði ein svona flaska upp á hótelherbergi þegar ég verð búinn að gifta mig. Takk fyrir Það ætti nú að vera nógu stórt tilefni. 

En já veit eiginlega ekki hvað ég get sagt meir.  u.þ.b 2 tímar í að ég fái að opna pakkann!
Ætla að enda þetta með smá myndbandi með honum vini okkar Gordon Brown þar sem David Cameron (sem er snillingur, hjólar í vinnuna) er að láta hann bókstaflega skíta í brækurnar.  Væri snilld ef Alþingi á Íslandi væri eins og í Bretlandi, allir að öskra eins og þeir vilja stjórnarandstaðan gerir bara grín af stjórninni, Mjöög gaman af þessu Wink




Gušmundur Heišar Helgason
1 athugasemd

23...

10. desember 2008 klukkan 18:39
Hólý shit!



Hafið þið sé myndina number 23? Allavega ég byrjaði að hugsa um hana og fattaði að það er helling af tölunni 23 út um allt þegar ég byrjaði á þessu bloggi.
Ég heiti Guðmundur Heiðar Helgason og það er 23 stafir í nafninu mínu
Skammstöfunin mín er GHH. (A=1, B=2, C=3, D=4, E=5, F=6, G=7, H=8...) 7+8+8=23
Í dag er 10.desember árið 2008 (10/12 '2008) 10+12+2+8=32 (23 afturábak!)
Þessi bloggfærsla er stillt klukkan 18:05, 18+5=23
Símanúmerið mitt er jafnt og 22...ég hefði alveg panikað ef það hefði verið einum meira
En já þetta er alveg fríki, gott dæmi um 11.september 2001, 9+11+2+1=23
Nóg af samsæriskenningum og móðusýki

Mig langar svo mikið að vera búinn í prófum.  Það er eins og það sé allir búnir í prófum nema ég og Árný...og við sitjum heima og vælum og vorkennum okkur.  En það verður sko gaman þegar prófin verða loksins búin. 


Það verður sko stuð eins og hjá þessum manni. Vonandi verð ég samt ekki orðinn svona mikið nörd þegar prófin verða búin.  Próf geta nefnilega farið illa með mann.  Pétur og Bjarki misstu nú kímnigáfuna sína tímabundið eftir prófatíð í fyrra.
 

Þessi mynd er tekin 2 dögum eftir próf í fyrra þar sem þeir eru að reyna að fóta sig aftur í gríninu.  Eftir 3 mánaða endurhæfingu voru þeir búnir að byggja húmorinn upp aftur, en hafa þó aldrei náð sér að fullu. 

Gušmundur Heišar Helgason
1 athugasemd

Gušmundur Bjarnfrešarson, meš ekkert hįskólapróf...eins og er

05. desember 2008 klukkan 14:30
Bara láta vita af mér, ég er enn hér Wink
Búið að vera mikið að gera í skólanum...2 ritgerðir sem ég er búinn að gera.  Ein þeirra um hvort það hafi verið fullkomið lýðræði í Reykjavík árið 1908 og eina um Innri markað ESB og hvernig samruni hans kom á samruna á öðrum sviðum og talaði ég mest um sameiginlegu landbúnaðar stefnun (CAP)....Já mjög spennandi. svo eru prófin byrjuð...búinn 18. des og þá eru eiginlega að koma jól.  vúhú Laughing


 Ég hitti hana Ástu mína ekkert fyrir en árið 2009 því að hún fer norður 9.des, búin alltof snemma í prófum! Hún er dugleg þessi elska.  Kannski við smökkum þetta kampavín sem ég á heima áður en hún fer ;) getur vel verið.



Dagvaktin er búin, dramatískur endir fyrir hann Georg Bjarnfreðarson, sem sést hér með tvífara sínum honum Leon Trotsky.  Þeir sem vita ekki hver Trotsky var, þá var hann einn af stofnendum Sovét-ríkjanna og átti að taka við af Lenín þegar hann dó.  En hins vegar tók Stalín völdin á eftir Lenín og sendi Trotsky í útlegð.  Trotsky var svo drepinn með ísöxi í Mexíkó.  Gaman af því.  En þeir eru báðir algjörir kommúnistar og líta eiginlega alveg eins út.  sammála? gott
Ég heyrði samt um daginn að það ætti að fara að gera 3ju seríuna..og hún ætti að gerast í fangelsi.  Ég sé það ekki alveg fyrir mér...ég held að þeir séu soldið að blóðmjólka þetta, ættu bara að hætta á toppnum.

En já ekki meira í bili....þarf að drífa mig í vinnu.  Ble! 

-Gummi
Gušmundur Heišar Helgason
2 athugasemdir

Lżšręšiš

18. nóvember 2008 klukkan 10:19
Síðasta laugardag þá fylgdist ég með mótmælum á Austurvelli.  Fór reyndar ekki niður eftir en horfði bara á þetta í sjónvarpinu, þar sem reiðir heimspekingar og rithöfundar fóru með ræður um að þeir vissu nákvæmlega hvað þyrfti að gera til að allt yrði betra.  Einn rithöfundurinn, rauðhærð kona sem ég man ekki hvað hét, sagði að það þyrfti að virkja lýðræðið aftur. Hún sagði svo að það þyrfti að boða til kosninga strax og að svo þyrfti almenningur að fá að kjósa um öll stór mál sem vörðuðu þjóðina. 
En er það eitthvað besta lausnin? Að láta almenning kjósa um öll stór mál? Ég segi allavega að það sé alls ekki góð lausn.  Fólk á það nefnilega til að kjósa frekar með tilfinningum sínum yfir einhverjum hitamálum í staðinn fyrir með almennri skynsemi.  Mér fannst þetta fólk, sem var að grýta Alþingi með eggjum, ekki vera hæft til að kjósa um eitthvað stórt mál með skynseminni...ef það hafði þá aldur til að kjósa. Einnig er almenningur ekki alltaf með bestu þekkinguna á málunum. 
 
Gott dæmi um þetta er þegar Ísland gekk í NATO árið 1949.  Þá varð almenningur brjálaður og vildu flestir að kosið yrði um málið, þar sem margir vildu Ísland algjörlega hlutlaust.  En Alþingi samþykkti samt sem áður inngönguna og engin þjóðaratkvæðagreiðsla varð.  Ég held samt að það séu langflestir sammála mér um það að Íslandi var mun betur borgið með herinn í Keflavík og í NATO, sérstaklega á tímum kalda stríðsins.  Hvað hefði gerst ef reiður almenningur hefði ráðið?


Það er rosalega flott að segjast vilja lýðræði og láta almenning kjósa um mál, en það virkar bara því miður ekki nógu vel.  Besta dæmið er Sviss, þar sem eru langflestar þjóðaratkvæðagreiðslur í heiminum, og fær almenningur að kjósa um mörg mál.  Hins vegar er kosningaþáttakan í Sviss mjög lág, þar sem t.d. í síðustu þingkosningum var hún 48,9%.  Einnig eru dæmi um það að hún hafi farið niður í 25% þegar kosið er um sérstök mál.  Er þetta lýðræðislegt? Þegar minna en helmingurinn af íbúunum kýs? Mér finnst það alls ekki.


Gušmundur Heišar Helgason
2 athugasemdir

Lummur og Landafręši

15. nóvember 2008 klukkan 18:38
Já, fríhelgi hjá mér, best að nýta hana í að læra, en ég hef eins og alltaf farið að gera eitthvað annað. Eins og að blogga. Sem var reyndar kominn tími á, þannig að þetta er í lagi .

Móðir mín bakaði lummur áðan. Langt síðan maður hefur fengið heitar lummur með sýrópi...m-m-m! segi ég eins og blökkukona :p. En ég fór að hugsa, eins og ég geri oft, af hverju fólk segir "þetta seldist eins og heitar lummur" þegar eitthvað selst vel? Ef heitar lummur seljast svona vel, af hverju er enginn að selja þær? Kannski ég gæti komið af stað góðum business og grætt alveg helling á Lummusölu. Heitar "Gumma-Lummur!". Nafnið eitt selur bara. Reyndar held ég í alvöru að ég myndi ekki græða mikið á lummusölu, eins og kannski pizzu- eða pylsusölu. Þetta orðatiltæki er bara bull.

Ég eyði líka miklum tíma á Facebook. Þar er ég mikið í leikjum eins og Party king, sem er frábær leikur! Gengur út á það að plana party, fá frægt fólk til sín og fá sér alltaf stærri og flottari partý-stað.  En annar leikur sem ég er mikið í er Geo Challenge.  Það er svon landafræði leikur, giska á fána, staðsetja borgir á kort og svo leiðis.  Ég er mjög sleipur í honum, þó ég segi sjálfur frá.   En já ég ætla að koma með smá skemmtilega getraun í svona landafræðistíl. 

1.  Hvaða fáni er þetta?

2. Á hvaða eyju eru þessir hausar, og hvaða landi tilheyrir hún?

3. Hvað land á þennan fána? (Hint, þetta er ekki sjálfstætt ríki)

Sá sem svarar þessu rétt, fær óvæntan glaðning, aldrei að vita hvað það er.. Wink

 

 

Gušmundur Heišar Helgason
2 athugasemdir

Gaman, gaman

05. nóvember 2008 klukkan 16:06


Vávávíva.  Barack Hussein Obama er orðinn forseti Bandaríkjanna, óska honum til hamingju með það, great success!  Ég og Ásta fundum út að hann hlýtur að vera frændi Saddam Hussein, þar sem millinafnið hans er, jú, Hussein.  Einnig er nafnið hans mjög líkt Osama, þannig að hann gæti verið líka verið skyldur Osama Bin Laden á einhvern hátt.  Hann Bin Laden á nú þvílíkt stóra fjölskyldu og örugglega helling af konum, góðar líkar að hann Obama sé sonur hans, hann var nú ættleiddur. 
Obama er líka mjög líkt "Yo, mama",  sem passar mjög vel við hann vegna þess hann er nú blökkumaður.  Barack Yo mama!  Hver myndi ekki kjósa það? Ég bara spyr.  Og já ég vil taka það fram að ég er ekki rasisti ég kaus hann Obama á kosningavökunni á Grand hótel í gær.


Herbergið mitt er í ruglinu..Það er allt í drasli og fiskarnir í fiskabúrinu eru að deyja og það er vond lykt af búrinu.  Var að skipta um vatn áðan og þrýfa það aðeins.  Og svo rétt í þessu var ég að sjá litla kónguló sem var búin að koma sér fyrir í horninu fyrir ofan sjónvarpið mitt.  Ég reddaði því með einu stykki af klósett pappír og ferð niður í klósettið.  

Kóngulær eru samt svo ógeðslegar! Eins gott að við höfum ekki svona stórar eða hættulegar eins og eru í heitari löndum.  Það er eitthvað við þær eins og trúðana sem er svo scary og ógeðslegt...Settu mig í herbergi með fullt af kóngulóm og einum trúð sem situr á stól og horfir á þig.  Velkominn í helvíti.Undecided  En já ef einhver vill kommenta hérna um hvað þeir eru mest hræddir við í öllum heiminum, endilega deila því. 

En ég ætla að enda þetta með smá myndbandi, sem fjallar um kóngulær og hvaða lyf hafa mismunandi áhrif á þær.  Freeekar fyndið!Laughing


Gušmundur Heišar Helgason
Engin athugasemd