Lummur og Landafræði
15. nóvember 2008 klukkan 18:38
Já, fríhelgi hjá mér, best að nýta hana í að læra, en ég hef eins og alltaf farið að gera eitthvað annað. Eins og að blogga. Sem var reyndar kominn tími á, þannig að þetta er í lagi .

Móðir mín bakaði lummur áðan. Langt síðan maður hefur fengið heitar lummur með sýrópi...m-m-m! segi ég eins og blökkukona :p. En ég fór að hugsa, eins og ég geri oft, af hverju fólk segir "þetta seldist eins og heitar lummur" þegar eitthvað selst vel? Ef heitar lummur seljast svona vel, af hverju er enginn að selja þær? Kannski ég gæti komið af stað góðum business og grætt alveg helling á Lummusölu. Heitar "Gumma-Lummur!". Nafnið eitt selur bara. Reyndar held ég í alvöru að ég myndi ekki græða mikið á lummusölu, eins og kannski pizzu- eða pylsusölu. Þetta orðatiltæki er bara bull.
Ég eyði líka miklum tíma á Facebook. Þar er ég mikið í leikjum eins og Party king, sem er frábær leikur! Gengur út á það að plana party, fá frægt fólk til sín og fá sér alltaf stærri og flottari partý-stað. En annar leikur sem ég er mikið í er Geo Challenge. Það er svon landafræði leikur, giska á fána, staðsetja borgir á kort og svo leiðis. Ég er mjög sleipur í honum, þó ég segi sjálfur frá. En já ég ætla að koma með smá skemmtilega getraun í svona landafræðistíl.

1. Hvaða fáni er þetta?

2. Á hvaða eyju eru þessir hausar, og hvaða landi tilheyrir hún?

3. Hvað land á þennan fána? (Hint, þetta er ekki sjálfstætt ríki)
Sá sem svarar þessu rétt, fær óvæntan glaðning, aldrei að vita hvað það er.. 
Guðmundur Heiðar Helgason



Hausarnir eru á páskaeyju og tilheyrir Chile
og síðasti fáninn er Abkhazia! :D
Niiice