Prófíll

  • Nafn: Guðmundur Heiðar Helgason
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: 21 árs strákur/maður úr Kópavoginum. Hef gaman af fótbolta, kvikmyndum, vinum, djammi og að eyða peningum. Myndi segja að ég væri hress og skemmtilegur (verðið bara að dæma) en mér finnst alltaf gaman að kynnast nýju fólki. Er á þriðja ári í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Auglýsing

Klukkan

Leikur dagsins

Guðmundur Bjarnfreðarson, með ekkert háskólapróf...eins og er

05. desember 2008 klukkan 14:30
Bara láta vita af mér, ég er enn hér Wink
Búið að vera mikið að gera í skólanum...2 ritgerðir sem ég er búinn að gera.  Ein þeirra um hvort það hafi verið fullkomið lýðræði í Reykjavík árið 1908 og eina um Innri markað ESB og hvernig samruni hans kom á samruna á öðrum sviðum og talaði ég mest um sameiginlegu landbúnaðar stefnun (CAP)....Já mjög spennandi. svo eru prófin byrjuð...búinn 18. des og þá eru eiginlega að koma jól.  vúhú Laughing


 Ég hitti hana Ástu mína ekkert fyrir en árið 2009 því að hún fer norður 9.des, búin alltof snemma í prófum! Hún er dugleg þessi elska.  Kannski við smökkum þetta kampavín sem ég á heima áður en hún fer ;) getur vel verið.



Dagvaktin er búin, dramatískur endir fyrir hann Georg Bjarnfreðarson, sem sést hér með tvífara sínum honum Leon Trotsky.  Þeir sem vita ekki hver Trotsky var, þá var hann einn af stofnendum Sovét-ríkjanna og átti að taka við af Lenín þegar hann dó.  En hins vegar tók Stalín völdin á eftir Lenín og sendi Trotsky í útlegð.  Trotsky var svo drepinn með ísöxi í Mexíkó.  Gaman af því.  En þeir eru báðir algjörir kommúnistar og líta eiginlega alveg eins út.  sammála? gott
Ég heyrði samt um daginn að það ætti að fara að gera 3ju seríuna..og hún ætti að gerast í fangelsi.  Ég sé það ekki alveg fyrir mér...ég held að þeir séu soldið að blóðmjólka þetta, ættu bara að hætta á toppnum.

En já ekki meira í bili....þarf að drífa mig í vinnu.  Ble! 

-Gummi
Guðmundur Heiðar Helgason
Ásta Berglind
 
Sæti minn.. Við reddum okkur um jólin.. Verður bara ennþá skemmtilegara að hittast á nýju ári :D

Ég haaata Georg Bjarnfreðarson! Arghh!

ESB.. pliff.. hvaaað er það ?
07. desember 2008 klukkan 22:46
Guðmundur Heiðar HelgasonSammála...nema maður elskar samt Georg, þættirnir væru ekki eins án hans ;)
08. desember 2008 klukkan 11:21

Skrifa athugasemd