Að verða tuttugu-og
15. desember 2008 klukkan 21:51

Í dag er 15.desember og á morgun þann 16.desember verð ég og hún Árný systir mín 21 árs stutt síðan maður varð 20 ára, en ég, Rafn og Steinar héldum afmælið á Gauknum, með 2 kúta og bolla, algjör snilld þó að ekki allir komust út af því þeir voru í prófi á laugardegi. En það verður ekkert þannig núna þar sem að 21 árs afmæli er eiginlega ekkert merkilegt og já það er dýrt. En ég sit hérna heima að gera ekki neitt nema bíða til klukkan 00:00 því þá má ég opna pakkann minn frá Ástu!

Það styttist svo í jólin, bara 9 dagar. Það styttist einnig í áramótin og ég held bara að fólk sé byrjað að hamstra áfengi fyrir hátíðarnar. Mikið að gera í vinnunni á föstudaginn og meira en venjulega á laugardaginn. Einnig fólk byrjað að versla meira af kampavíni en vanalega, en það er jú svona áramótadrykkur.

En já veit eiginlega ekki hvað ég get sagt meir. u.þ.b 2 tímar í að ég fái að opna pakkann!
Ætla að enda þetta með smá myndbandi með honum vini okkar Gordon Brown þar sem David Cameron (sem er snillingur, hjólar í vinnuna) er að láta hann bókstaflega skíta í brækurnar. Væri snilld ef Alþingi á Íslandi væri eins og í Bretlandi, allir að öskra eins og þeir vilja stjórnarandstaðan gerir bara grín af stjórninni, Mjöög gaman af þessu

Guðmundur Heiðar Helgason


Ahh..
Bææ