2008-2009
29. desember 2008 klukkan 19:36

Þá styttist óðfluga í það að árið 2008 klárist og 2009 kíkir í heimsókn. Ég myndi segja að 2008 hafi bara verið mjög gott ár og margt hefur gerst á þessu ári sem er að líða og ég ætla að taka saman svona smá annál sem bar hæst á árinu hjá mér.
-Árið byrjaði á snilldar afmæli hjá Flosa, Andra og Dabba sem var haldið á Gauknum (sem heitir nú Tunglið). Það toppaði þó ekki afmæli mitt, Rafns og Steinars í desember árið á undan!
-1.febrúar var svo skemmtilegt djamm þar sem ég hitti skemmtilega á stelpu á Glaumbar sem ég átti eftir að hitta mörg skipti í viðbót. ;)
-29.febrúar - tvíburar Jóhanns Inga og Jóhönnu skýrðir. Fá nöfnin Védís og Arney.

- 1.mars - SUS-dagur á Blönduósi
-17.mars - Ég og Ásta byrjum saman :*

-Apríl - Ég fer í heimsókn á heimavist MA yfir helgi.
Góð ferð með fjölskyldunni í sumarbústað hjá Apavatni.
-Maí - Flestir að mygla í prófatíð. Náði öllu, en einkunnir mættu vera hærri :P
-Júní - Fer norður á Akureyri þar sem Ásta er búin í prófum. Smá djamm tekið svo hjálpa ég henni að flytja dótið af vistinni og á Blönduós. Tók reyndar dótið hennar Margrétar líka og bíllinn var mjööög troðinn.
-Júlí - Húnavaka á Blönduósi. Skemmtileg helgi þar sem ég var fenginn í smá vinnu og svo var farið á ball og skemmt sér eitthvað.
Brúðkaup Hjalta og Láru á Húsavík, mjög skemmtilegt brúðkaup og góð helgi :)
4.ágúst - Ásta Berglind orðin 18.ára og ég gaf henni kjól ;) Fórum á Akureyri á sunnudeginum um versló þar sem afmælinu var sko fagnað!
Ásta flytur svo suður í lok mánaðarins. Býr fyrst hjá mér en flytur svo til Einars og byrjar í Borgó þar sem einkunnirnar hjá henni fara ekki undir 7 !
-September - skólinn byrjaði hjá mér, kominn á annað ár í stjórnmálafræði.
Ég týndi mannorðinu mínu. Ég klemmdi mig á bíl fyrir utan Quiznos og það var mjög vont og leið næstum yfir mig. Nöglin losnaði en hún fór ekki af fyrr en á aðfangadag.
-Október - Ég fann mannorðið mitt aftur
Ég fór í lýtaaðgerð...það eru fjarlægðir stíflaðir fitukyrtlar úr eyrnasneplunum mínum.
Ég og Ásta fórum á sjávarútvegssýninguna...frítt!
Íslenska bankakerfið hrynur
Kattavinafélagið - gegn líffræðingum er stofnað á Facebook við mikla reiði líffæðinga.

-Nóvember - Sperm bústaðarferð! Mikið gaman og mikið af skemmtilegum leikjum eins og froskaleikur og leikur sem maður lemur í borð og gerir merki.
-Forsetakosningar í Bandaríkjunum. Ég og Ásta kíkjum á kosningavöku hjá Bandaríska sendiráðinu og fáum að kjósa! Við kusum Obama og hann vann. Great success!
-Desember - Prófin byrja - Gengu vel!
Ásta fer norður á Akureyri og svo Blönduós
Ég á afmæli! 21 árs.. hundgamall
Jólin. Nöglin mín datt af.
Ef það er eitthvað sem ég gleymdi endilega commentið á það!
Já ég vona að 2009 verði jafngott, að allt gangi jafnvel og að maður nái að bæta sig og læra af öllum sínum mistökum :)
-Gummi
Guðmundur Heiðar Helgason


Margrét var bara með 2 töskur í flutningnum, ef ekki bara eina! lýgur bara.. næn..
ooog ég fékk nú 6 í íslensku og íþróttum! platar og platar ;)
:* Ást(a) á þig