Prófíll

  • Nafn: Guðmundur Heiðar Helgason
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: 21 árs strákur/maður úr Kópavoginum. Hef gaman af fótbolta, kvikmyndum, vinum, djammi og að eyða peningum. Myndi segja að ég væri hress og skemmtilegur (verðið bara að dæma) en mér finnst alltaf gaman að kynnast nýju fólki. Er á þriðja ári í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Auglýsing

Klukkan

Leikur dagsins

Ísland í dag

12. febrúar 2009 klukkan 15:26
Það er langt síðan maður hefur nennt að blogga, en ég nenni því núna því ég nenni ekki að læra fyrir próf í aðferðarfræðinni :P

Það er sko margt búið að gerast í stjórnmálum á Íslandi og mig langar soldið að tjá mig um það núna..
mér lýst ekkert á þessa nýju ríkisstjórn.  Ætla að koma með nokkra punkta hérna..


  • Stjórnarslitin voru ekki á málefnalegum grundvelli.  Ég held persónulega að Samfylkingin hafi slitið samstarfinu því þeir voru byrjaðir að lækka svo mikið í skoðanakönnunum.  Hún er rosalega góð í því að móta stefnu flokksins eftir að hafa séð skoðanakannanir fyrst.  Fyrir áramót var mikill stuðningur við ESB og þá byrjað samfylkingin að þrýsta á sjálfstæðismenn.  Sjálfstæðismenn ætluðu að fara með þá umræðu á landsfund í febrúar.  En síðan þegar stuðningur þjóðarinnar við ESB lækkar og fylgi XS líka þá verða þeir alveg vitlausir og koma með óraunhæfar kröfur til að geta slitið samstarfinu.   
  • Samfylkingin og Vinstri grænir eru alltaf svo rosalega lýðræðislegir flokkar, eða allavega líta þeir svoleiðis á sjálfa sig.  Hins vegar hefur þessi stjórn aðeins 41,1% fylgi á bakvið sig. 
  • Þeir eru búnir að skipa 2 nýja ráðherra sem eru í hvorugum flokknum og enginn nokkurn tíma kaus þá árið 2007.  Þeir segja að þessir ráðherrar séu skipaðir á faglegum forsendum, en með einmitt svona aðgerðum er verið að taka alla lýðræðislegra ábyrgð frá flokkunum.  Það er ekki lýðræðislegt. 
  • Einnig hafa margir gagnrýnt Árna Matt fyrrv. fjármálaráðherra fyrir að vera dýralæknir en núna hins vegar erum við komin með Steingrím J. Sigfússon menntaðan jarðfræðing í embætti fjármálaráðherra.. ætli þessi gagnrýni gildi þá ekki lengur?
  • Eina málið sem þeir virðast leggja áherslu á er að koma Davíð úr seðlabankanum.  Lögin sem voru gerð um seðlabankann eru líka mjög ófagmannlega unnin og þau vilja ekki svara hverjir unnu þau og hvað sé á bakvið þau.  Mjög léleg stjórnsýsla ef þú spyrð mig.
  • Einnig er verið að hugsa um að hætta við að leyfa hvalveiðar.  Það er fín byrjun í að bjarga þjóðinni með því að slá u.þ.b. 300 möguleg störf af borðinu..

Ég veit ekki alveg hvað blessaði Framsóknarflokkurinn er að þykjast vera stikkfrí.  Fínt hjá þeim að skipta um formann og forystu og allt það en þeir bera samt mikla ábyrgð. 
  • Þeir t.d. eru búnir að vera í ríkisstjórn í 32 ár af síðustu 36 árum. 
  • Þeir voru með sjálfstæðismönnum í stjórn þegar bankarnir voru seldir.
  • Þeir voru með viðskiptaráðuneytið í 12 ár af síðustu 14 árum. Hin 2 árin var ráðuneytið hjá Samfylkingunni


Ég veit ekki alveg hvað Frjálslyndi Flokkurinn er búinn að vera að gera síðustu daga.  Það hefur ekkert heyrst í honum og flokkurinn er með mjög lítið fylgi miðað við að hann sé búinn að vera í stjórnarandstöðu.  Álit mitt á flokknum hefur verið fínt þar sem að þeir eru á móti kvótakerfinu, studdu álversframkvæmdir á sínum tíma og þeir eru með hvalveiðunum.  En hins vegar eru þeir með "vitleysinga" í flokknum og þeir bætast bara við því að nú er Sturla vörubílstjóri víst genginn í flokkinn...já ég segi bara gangi þeim vel.

Annars er ég nokkuð bjartsýnn með Sjálfstæðisflokkinn.  Þeir bera gríðarlega ábyrgð á ástandinu hér á Íslandi.  Hins vegar er verið að skipta út forystunni og ég vona að Bjarni Benediktsson verði kosinn formaður.  Einnig vona ég að það verði tekin afstaða á landsfundi gegn Evrópusambandinu og þeir munu áfram halda sínu striki sem hægri flokkur og gera jafnvel betur en þeir gerðu áður.  Vona sem flestir muni kjósa Sjálfstæðisflokkin í apríl.  

-Gummi

Guðmundur Heiðar Helgason

Skrifa athugasemd