Prófíll

  • Nafn: Guđmundur Heiđar Helgason
  • Stađur: Kópavogur
  • Um mig: 21 árs strákur/mađur úr Kópavoginum. Hef gaman af fótbolta, kvikmyndum, vinum, djammi og ađ eyđa peningum. Myndi segja ađ ég vćri hress og skemmtilegur (verđiđ bara ađ dćma) en mér finnst alltaf gaman ađ kynnast nýju fólki. Er á ţriđja ári í stjórnmálafrćđi viđ Háskóla Íslands.

Auglýsing

Klukkan

Leikur dagsins

Kosningar

29. október 2008 klukkan 15:34
Ég er í stjórnmálafræði og finnst þá pínu gaman að skrifa um eitthvað sem tengist stjórnmálum. Þannig að ef einhverjum finnst það leiðinlegt, þá biðst ég innilega afsökunar.

Næsta þriðjudag, 4.nóvember, eru forsetakosningar í Bandaríkjunum sem mér hefur fundist mjög gaman að fylgjast með. En í þessu bloggi ætla ég aðeins að tala um þetta mjög sérstaka kosningakerfi sem þeir eru með þarna úti og reyna að útskýra það auðveldlega. Í rauninni er það ekki almenningur sem kýs forsetann heldur eru það kjörmenn sem gera það úr hverju ríki fyrir sig. Fjöldi kjörmannanna er samtals 538 og dreifast þeir á ríkin eftir íbúafjölda, þannig að fámennari ríkin hafa minna vægi heldur en stærri ríkin, mjög einfalt. Dæmi Kalífornía hefur 55 kjörmenn á meðan Wyoming er bara með 3. Síðan er kosið í öllum 50 ríkjunum og ef frambjóðandi fær vinnur t.d. í Kalíforníu þá fær hann þessi 55 kjörmannaatkvæði af þessum 538.  Þess vegna er betra að vinna stóru ríkin því þú færð flesta kjörmenn þaðan.


Það sem gerðist í forsetakosningunum árið 2000 á milli Al Gore og George W. Bush sýndi hvað þetta kerfi er gallað.  Al Gore var með 48,4% atkvæða yfir allt landið en George Bush með 47,9%.  Gore fékk u.þ.b 540.000 fleiri atkvæði en tapaði kosningunum, vegna þess að Bush var með fleiri kjörmenn, en þeir voru 271 á móti 266 (getið séð á myndinni,  blátt Gore, rautt Bush).  Ekkert lýðræðislegt og meikar engan sens! Úrslitin réðust á Florida en það var mikill skandall eftir það sem ég ætla ekkert að fara í.   En já ég vona að þetta hafi verið fræðandi og kannski skemmtilegt fyrir þá sem nenntu að lesa.  Vonandi var einhver sem sagði:"já nú skil ég þetta, gaman".


En önnur getraun, hvað hét þessi fyrrverandi forseti með þetta rándýra skegg? sá sem svarar rétt fær knús frá mér!
Guđmundur Heiđar Helgason
3 athugasemdir

Stjórnmálafrćđigrín

26. október 2008 klukkan 18:20
Hérna kemur smá grín að hætti stjórnmálafræðinga, stal þessu af Politica síðunni Smile


SÓSÍALISMI

Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.



KOMMÚNISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.



FASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.



NASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.



SKRIFRÆÐI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir
svo allri mjólkinni.



HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast
vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein



SÚRREALISMI

Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.



BANDARÍSKA FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við
fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna
hún datt niður dauð.



ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar

Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í
gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í
skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og
skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum
6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur
meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum.
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni
til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum
stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur
almenningi í hlutafjárútboði.



FRANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess
að þú vilt eiga þrjár kýr.



JAPANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en
framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja
teiknimyndahetju, „Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim.



ÞÝSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í
mánuði og mjólka sig sjálfar.




ÍTALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að
borða.



RÚSSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.



SVISSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.



KÍNVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í
lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem
sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.



INDVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.



BRESKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki



ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á
það.



NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.



ÍRASKT FYRIRTÆKI

Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í
landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
 

Tilvalið að enda þetta með dansi frá Boris Yeltsin! Frábær forseti, alltaf hress og ávallt fullur.  Munum sakna hans
Guđmundur Heiđar Helgason
4 athugasemdir

Af hverju er ég ekki ađ lćra?

21. október 2008 klukkan 20:45
-"Af hverju er ég ekki að læra?" sagði hún Ásta Berglind við mig með miklum örvæntingartón.  "Ég er bara búin að hanga á Facebook í allan dag"
-"Ég veit það ekki" svaraði ég Ástu, en hugsaði svo með mér af hverju ég væri sjálfur ekki að læra? Ég er að fara stórt próf á fimmtudaginn.  Myrkrið frá skammdeginu skreið inn um kjallaragluggann, líkt og svört skykkja og sjónvarpið suðaði líkt og lítil fluga.  Lítil fluga með stórt hjarta.  Ég settist því niður fyrir framan tölvuna og tók til þess að blogga, í staðinn fyrir að læra. 


Er ég rithöfundur eða hvað? sjæse.  En já ég er að fara í próf á fimmtudaginn úr einhverjum 300 blaðsíðum í Evrópusamvinnu, en þetta er áfangi sem fjallar um sögu og stofananir ESB. Það helsta sem ég hef lært með því að fara yfir söguna er að Frakkar eru asnar.

Sacré Bleu, þoli ekki frakka.Foot in mouth  Mér finnst að við ættum ekki að fara í ESB, við græðum ekki nógu mikið á því.  Við eigum frekar að leita annarra leiða í sambandi gjaldmiðilinn okkar.  Finnst að fólk vilji bara fara út af því það er einhver skyndilausn fyrir efnahagsástandinu.  En nóg um það.

Ég og Ásta stofnuðum í dag skemmtilegan hóp á Facebook sem heitir "Kattavinafélagið - Stoppum líffræðinga" og er það á móti fólki sem getur ekki hætt að tala um líffræði á almannafæri.  Þetta félag hafði nú verið til í einhvern tíma þar sem margir aðilar gerðu ekkert annað en að tala um líffræði...og ég er ekki í líffræði.  En já þið sem eruð á facebook endilega skráið ykkur í þetta nett-flippaðafélag.  Cool


Ég var áðan heima hjá mér að leita að símkorti sem mig vantaði og fann það svo loksins, rétt áður en ég hljóp út í strætó. Þá hugsaði ég :"alltaf á síðasta staðnum sem maður leitar á." Og ég fattaði að það er alveg hárrétt...Af hverju í ósköpunum ætti maður að halda áfram leita þegar maður er búinn að finna það sem maður er búinn að leita að? Þannig já, maður finnur alltaf hlutinn á síðasta staðnum sem maður leitar.  Spakmæli mánaðarins, takk.Wink
Guđmundur Heiđar Helgason
1 athugasemd

Ég finn aldrei góđan titil á svona blogg..

13. október 2008 klukkan 15:44



Þetta á ekki að vera eitthvað "crappy" kreppublogg, en ég vildi bara taka undir með honum Davíð Oddsyni. Af hverju svona alvarleg? Við eigum að vera jákvæð og brosa og þá gengur allt betur. Ef þið sjáið hins vegar Gordon Brown á röltinu þá megið þið endalega vera leiðinleg við hann, ef þið sjáið hann ekki verið þá bara hress. Cool

Það er búið að vera slatti í gangi. Var í prófi í stjórnmálaheimspeki á þriðjudaginn sem gekk ekki vel, þó ég hafi lesið...var að mínu mati ósanngjarnt þar sem það var ekki spurt mikið um eimhver lítið atriði sem voru bara einhvers staðar í bókinni...maður á að ná ef maður lærir! takk
Foot in mouth



Ég og Ásta fórum í innflutningspartý á laugardaginn til hans Bjarna en hann var að flytja í flotta íbúð sem er reyndar ekki á augljósasta stað í heimi þar sem við vorum lengi að finna staðinn. Ásta ákvað að vera driver og bauð mér svo fallega eins og á myndinni að fá mér bjór (maður getur ekki sagt nei við bjór á þessari mynd
Laughing). Það var mjög fínt í þessu partýi nema ég var eitthvað óvenju sljór þetta kvöld. Það var sagt að ég væri eitthvað dofinn...þreyta og nokkrir bjórar get átt einhvern þátt þar..Undecided

Ég og Ásta fórum svo um daginn í göngutúr niður
í Elliðaárdal. Vorum búin að vera alltof lengi niður í súrefnislausum kjallara og vorum bara komin með mikinn hausverk. En þetta var mjög gaman og hressandi og við tókum nokkrar myndir eins og þessi sem er hérna hægra megin. Þessi mynd væri mögnuð kápa á einhverri bók. "Á Brú Lífsins - sjálfsævisaga eftir Guðmund Heiðar Helgason". Vá ég sé þetta alveg fyrir mér!




En já ég er annars bara mjög ánægður með lífið núna Smile

Guđmundur Heiđar Helgason
2 athugasemdir

Allt ađ ske

04. október 2008 klukkan 15:26

Jahá, þá er kominn enn önnur helgi. Tíminn líður hratt á gervihnattaöld eins og í Gleðibankanum...spurning um að kaupa sér hlutabréf í gleðibankanum, það eru allir að verða svo leiðir út af þessari kreppu.

Gleðibankinn væri reyndar betra nafn heldur en Glitnir, aldrei náð því nafni almennilega og hvað þá merkinu þeirra. Einhver svona wannabe útgáfa af Coca-Cola merkinu. Legg til að nafninu og merkinu verði breytt þar sem búið er að þjóðnýta bankann, takk fyrir.

 

En já það er eitthvað búið að vera í gangi hjá mér þessa vikuna. Ég og Ásta fengum boðsmiða á sjávarútvegssýninguna sem við fórum á í morgun. Vorum mjög töff með svona nafnspjöld, merkt skólunum okkar Ullandi.

Á þriðjudaginn fór ég svo í smá aðgerð þar sem voru fjarlægðir 3 fitukirtlar sem höfðu víst stíflast í eyrnasneplunum mínum. Einn af þeim var víst mjög stór að læknirinn minn heimtaði medalíu eða koníaksglas fyrir að ná honum út. Það stóð reyndar á kvittuninni eftir aðgerðina að hann hefði fjarlægt æxli úr mér..smá spúkíTala af sér En allt í góðu núna, pínu blár samt á öðru eyranu.

Um daginn var ég að lesa bók fyrir áfanga sem heitir "bandarísk stjórnmál" og framan á annarri bókinni er mynd af öllum 42 forsetum Bandaríkjanna. Eftir að hafa lesið þá kíkti ég yfir forsetan til að sjá hvað ég þekkti marga og ég gat nú alveg nefnt slatta á nafn. Það var ekkert að gera hjá mér þannig ég ákvað bara að reyna að læra hvað allir þessir gæjar heita og núna get ég talið upp alla forseta Bandaríkjanna upp. Þetta er svolítið kúl að mínu mati en samt einhvern veginn mjög nördalegt..Óákveðinn


Smá getraun í endan. Hvaða menn eru þetta? Ég veit það allavega
Ullandi Sá sem getur þetta fær eitt gott "five" frá mér! Glottandi

 

 

 

 

 

 

Guđmundur Heiđar Helgason
4 athugasemdir

Trúđar

30. september 2008 klukkan 12:13


Um daginn var ég að hugsa að þegar ég var lítill þá fannst mér trúðar svo skemmtilegir og fyndnir.   En shit hvað þeir geta verið scary eins og hægt er að sjá á þessari mynd hérna fyrir ofan.  Hvort væri meira scary að vera einn í einhverju dimmu húsasundi og það væri sjúskaður glæpamaður eða dópisti sem mætir manni eða þá að þú mætir manni í trúðabúningi svipuðum og þarna fyrir ofan?  Ég væri svo miklu hræddari við manninn í trúðabúningnum, því að það er svo ótrúlega langsótt að lenda í því og sá maður væri örugglega eitthvað veikur á geði og er líklegur til alls. Gæti verið fjöldamorðingi eða mannæta...John Wayne Gacy var alltaf í trúðabúning og hann drap ca. 30 manns sem hann gróf í kjallaranum sínum.  Ég veit að það eru margir sammála mér og sérstaklega Bjarki Már, sem er örugglega með mestu trúðafóbíu í heimi.  Og hann Bjarki er stór maður sem kann að slást og ef hann er hræddur við eitthvað þá er ástæða til að óttast það..Ullandi

(Jack Nicholson og Heath Ledger sem Jókerinn, pínu munur)

Jókerinn, vondi kallinn úr Batman er svona eiginlega trúður, sem gerir hann að mjög góðum vondum kalli vegna þess hann er snarbilaður.  Með því að gera hann svona aðeins "dekkri" en hann var alltaf í nýjustu Batman myndinni Dark knight (og jú láta góðan leikara eins og Heath Ledger leika hann) þá ertu kominn með brilliant illmenni.  Ég ætla að enda þetta með því að setja inn atriði úr Dark Knight sem ég fann(Ásta kenndi mér að setja svona video-klippur inn)
Glottandi gott atriði!



Guđmundur Heiđar Helgason
2 athugasemdir

Harmleikur á Quiznos og Karl Marx

25. september 2008 klukkan 14:17
Maður er alltaf jafn svalur.  Svalur Ég, Rafn og Ásta fórum út að borða áðan á Quiznos.  Þegar við vorum búin að leggja og vorum að labba út, þá tekst mér að klemma vinstri baugfingurinn milli fram og aftur hurðarinnar...ekki spyrja ég var bara eitthvað að halda í bílinn þegar við lokuðum..en allavega ég stend þarna eins og asni með puttann fastan í bílnum og reyni að opna hurðina sem tekst ekki því Rafn er búinn að læsa.  Þannig ég næ að halda kúlinu, vegna þess að það stóð fólk þarna rétt hjá, og bið hann Rafn um að opna bílinn því að ég er klemmdur fastur í honum.  Þegar ég næ að losa puttann þá löbbum við inn á staðinn og ég er að deyja úr sársauka og það blæðir úr puttanum og inn á nöglina mína.  En svo fer öll mín karlmennska mín og harka út um gluggann þegar mér byrjar allt í einu geggjað að svima, og ég byrja bara að sjá hvítt og það líður næstum yfir mig þarnaÓákveðinn..eftir það byrja ég að svitna svakalega og varð bara grár í framan...ég var víst eins og uppvakningur þarna..."zombie á quiznos", gæti komið í Séð og heyrt.

 

Ég var að lesa um hann Karl Marx í vikunni, sem er jú einn af upphafsmönnum kommúnismans og skrifaði kommúnistaávarpiði...ég veit ekki alveg hvor er meiri jólasveinn, Hann eða jólasveinninn (sem  er mikill jólasveinn), þeir eru allavega mjög líkir í útliti.  Það hafa margir menn komið með slæmar hugmyndir í gegnum tíðina eins og að setja á kynjakvóta, en ég held hann Marx hafi komið með verstu hugmyndina af öllum.  Hans hugmynd drap u.þ.b 100 milljónir manns og u.þ.b 1/3 af öllum heiminum var kúgaður undir þessu stjórnkerfi á tímabili.  Hann að vísu kom ekki nálægt þessari hugmynd í verki en það voru menn sem gerðu það samkvæmt marxískum hugmyndum. 

Spurning hvort að jólasveinninn hvort jólasveinninn hafi upphaflega átt að kommúnisti? Hann er jú í rauðum búning.  Og kannski átti hann að búa í kommúnu með álfunum sínum á norðurpólnum, þar sem þeir unnu á samyrkjubúi að smíða leikföng sem þeir gáfu svo frítt til samfélagsins aftur...kannski, eða kannski ekki. 


En já alltaf gaman af þessum kommúnistum...sérstaklega á djamminu.
Svalur
Meira bullið í manni...nóg í bili

-Gummi harði með blóðuga baugfingurinn

Guđmundur Heiđar Helgason
2 athugasemdir

Blogg númer 2 (frumlegur titill)

16. september 2008 klukkan 18:37

Sumir hugsa svona um bensínverðið

Ég var að sjá inn á mbl.is að verð á olíutunnu í Bandaríkjunum sé komið í undir 89 dollara.  Í júlí var tunnan í hámarki, eða 147 dollurum sem þýðir að verðið hefur lækkað um 40%. 
En ef við skoðum Ísland þá var verðið í júní u.þ.b 170 kr líterínn á 95 okt, en er nú í ca. 165 krónum á flestum stöðum.  Samkvæmt minni stærðfræðikunnáttu þá er þetta ekki nema ca. 3% lækkun...Er þetta í einhverju samræmi við það sem er í gangi í heiminum? ég bara spyr.  Eða er bara annað samráð í gangi?  Ef einhver er með skýringu á þessu endilega kommenta
Glottandi





Á morgun verður svo komið hálft ár hjá mér og þessari skvísu.  Byrjuðum saman 17.mars
Brosandi fyrir þá sem nenntu ekki að reikna. 
Guđmundur Heiđar Helgason
5 athugasemdir

jájájá, nýtt blogg

11. september 2008 klukkan 15:08
NÝTT BLOGG!


(Fólk ánægt með nýja bloggið)

Jæja þá er strákurinn bara kominn með glænýtt blogg. Þar sem það varð ekkert svarhol í sviss í gær þá fannst mér tilvalið að setja upp eina svona bloggsíðu, hefði verið pínu tímasóun ef það hefði komið heimsendir...

En það er helling búið að vera í gangi hjá mér þessa dagana. Skólinn byrjaði 1.september og ég er þá byrjaður á öðru ári í stjórnmálafræðinni
Brosandi strax búið heilt ár í háskóla...og það eru heil 5 ár síðan ég útskrifaðist úr smáraskóla! úff hvað þetta líður hratt og maður er að verða gamall...fer að verða tuttugu-og, en ekki bara tuttugu ára sem var nógu mikið sjokk.

Ásta er svo flutt í bæinn og sem er bara frábært. Býr hjá celeb bróðir sínum í árbænum. Fæ nú að sjá hana á eiginlega á hverjum degi og spara mikinn bensínkostnað í leiðinni, sem fór áður í að keyra norður á Blönduós um helgar
Ullandi Og við verðum bráðum búin að vera saman í hálft ár Brosandi mjög gott hálft ár að mínu matiGlottandiHlæjandi

Í gær fékk ég svo nýja en hún er hjá vínbúðinni í borgartúni. Ótrúlega flott verslun, örugglega sú flottasta á höfuðborgarsvæðinu. Mig blöskraði frekar mikið þegar ég sá koníaksflösku frá 1888 þarna til sölu á tæpan 300.000 kall! vá hvað það hlítur þá að vera gott vín..annars væru það frekar mikil vonbrigði að kaup svona flösku og svo væri hún ekkert spes á bragðið
Gráðugur

En ég er allavega í fríi þessa helgi þannig það er spurning um að fá sér eitthvað í aðra tána
Glottandi En já mig dettur ekkert mikið meira í hug...ætla að reyna að vera duglegur að setja einhverja vitleysu hingað inn.
Heyrumst!

Gummi
Guđmundur Heiđar Helgason
4 athugasemdir