Langt síđan síđast
14. október 2009 klukkan 17:26
Ég veit ekki hvort einhver saknaði bloggsins hjá mér, en ég slysaðist inn á það þar sem ég hef hangið heima síðustu daga, gríðarlega einmanna að jafna mig á leiðindapest sem hefur verið að ganga. Síðasta færsla sem ég kom með var í 12. febrúar og það má nú segja að það hafi margt gerst síðan þá. Margt gott og líka eitthvað slæmt, en ég mun nú frekar fara yfir þetta góða.

27.febrúar fæddist hann nágranni minn í næsta herbergi Marínó Helgi Unnarsson. Hann er alveg yndislegur, byrjaður að skríða út um allt og heldur reglulega fyrir mér vöku :). En við erum miklir félagar bröllum ýmislegt saman!
Hann Marínó er þó ekki eina barnið sem hefur komið við sögu í fjölskyldunni, ónei. Það var einn skemmtilegan sunnudag, þegar öll fjölskyldan var komin saman í mat þá biðu 2 sónarmyndir á matarborðinu, ein frá Jóhönnu og Jóhanni Inga og ein frá Árnýju systur og Bjarna! Þessi börn eru sett nánast á sama tíma, 1.nóvember minnir mig, með eins dags millibili. Þetta kom svolítið á óvart þrátt fyrir að manni ætti nú gruna eitthvað, t.d. þegar ég sá Árný og Bjarna labba saman til læknis og þegar Ásta fann óléttupróf heima á Álftanesinu þegar við fengum að vera þar, en hún pældi samt ekkert í því ekki fyrr en hún sá sónarmyndirnar hehe :) mögnuð athyglisgáfan hjá okkur :P
En já ég verð þá bráðum sá eini barnslausi í fjöldkyldunni! Ekki nógu gott hjá þeim, lætur mig líta illa út ;)
Skólinn er byrjaður aftur og maður er kominn á 3ja ár! Styttist í að maður verði kominn með háskólapróf....finnst eins og ég sé bara nýkominn úr MK, alveg fáránlegt. Veit ekki alveg hvað maður á að gera eftir BA-prófið, en það er líklegast bara sniðugt að halda áfram í námi.
Annars er smá tilbreyting núna þar sem ég er í 2 áföngum sem eru kenndir á ensku. Svolítið sérstakt að heyra prófessor sem maður veit alveg að er íslenskur tala bara við nemendurna á ensku. Hinn enska áfangann kennir svo eldri bresk kona, sem er rosalega krúttleg en það var svolítið ruglandi þegar hún eyddi heilum tíma í að tala um gereyðingarvopn. Kjarnorku- og efnavopn og hvernig þau drepa þá sem verða fyrir þeim....passaði ekki alveg við þessa gömlu góðu konu.
Það má segja að það hafi mikið breyst í mínum vinahóp. Næstum helmingur Sperm-aranna eru bara komnir í lögguna og voru út á landi að vinna í sumar. Olli býr núna á Akureyri (þarf að kíkja á strákinn bráðum og fara í Sjallann), Heiðar var í Vestmannaeyjum og Flosi á Selfoss minnir mig. Annars hef ég verið að hanga rosa mikið með líffræðingum, þar sem margir góðir vinir mínir eru í líffræði. Pínu fyndið þar sem ég var nú einn af stofnendum á félagi sem var á móti líffræðingum! Merki félagsins er hér fyrir neðan.
Fólk þarf samt að fara að passa sig á því að vinir mínir Bjarki og Pétur og fleiri eru farnir að taka grínin sín frekar alvarlega. Því þegar þeir segjast ætla að gera eitthvað, sem margir myndu túlka sem grín, þá gera þeir það! Dæmi þegar við ákváðum að halda partý sem við kölluðum "TURKEY", þá sögðumst við ætla að hafa kalkún. Enginn bjóst hins vegar við því.. en það var keyptur kalkúnn og við eyddum heilum degi í að búa hann til. Það kom síðan flestum partýgestum á óvart þegar það kom í partýið að það var kalkúnn með fyllingu á boðsstólnum.
Síðan stakk einhver upp á því að búa til bar í íbúðinni sem Fannsi, Magga og Helga eru að leigja (við strákarnir eigum nú þessa íbúð líka). Flestir myndu halda að þetta væri grín...een Bjarki og Pétur fóru og keyptu dýra birkiplötu sem við létum leigubílstjóravinkonu okkar grafa ljóð og nöfnin okkar í. Þeir keyptu líka einhverjar aðrar plötur sem málverk mun príða til að gera barinn fullkominn. Þannig já, passið ykkur að gefa þessum drengjum brjálaðar hugmyndir...þeir munu framkvæma þær.

(Passa sig á þessum mönnum)
En já þetta er orðið frekar langt hjá mér. Sjáum síð til hvort ég nenni eitthvað að halda þessu bloggi við. ;)
-Gummi

Guđmundur Heiđar Helgason
4 athugasemdir
4 athugasemdir